Vík SH 13

7498. Vík SH 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sómabáturinn Vík SH 13 var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001og var með heimahöfn í Grundarfirði.

Árið 2002 var báturinn seldur norður í land og fékk nafnið Sigurveig EA 527 með heimahöfn á Akureyri.

Árið 2008 fær báturinn nafnið Svanur EA 14 með heimahöfn í Hrísey og þar var hann til ársins 2022

Þá fékk báturinn nafnið Hringur SI 34 með heimahöfn á Siglufirði en árið síðar var hann kominn vestur í Ólafsvík undir nafninu Lára SH 237.

Vorið 2025 fékk báturinn nafnið Siggi Arnfjörð SH 247 og heimahöfnin Ólafsvík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd