
Hér gefur að líta Fálka ÞH 260 frá Raufarhöfn í slipp á Akureyri og ég myndi giska á árið 1984 eða 5.
Báturinn, sem var 8 brl. að stærð, var smíðaður í Bátalóni árið 1978.
Árið 1986 fékk báturinn nafnið Bylgjan I SH 273 með heimahöfn í Ólafsvík.
Árið 1995 fékk hann nafnið Bylgja II GK 141 með heimhöfn í Hafnarfirði og síðar sama ár var hann talinn ónýtur og tekinn af skipaskrá.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.