
Jón Steinar tók þessar myndir af loðnuskipinu Ásgrími Halldórssyni SF 250 í gærmorgun en það var statt fyrir utan Grindavík.
Skipið fyllti sig svo í tveim köstum og gaf Venusi NS 150 rest.
Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni í Noregi árið 2000 fyrir Lunar Fishing í Skotlandi og hlaut þá nafnið Lunar Bow.
Skinney-Þinganes hf. keypti skipið til Íslands árið 2008 og gaf því nafnið Ásgrímur Halldórsson SF 250.
Skipið er 61,2 metrar að lengd, 13,2 metra breitt og mælist 1528 brúttótonn að stærð. Aðalvél 7707 hestafla Wartsila.



Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution