
Gyða Jónsdóttir EA 20 hét upphaflega Olli SH 375 og var smíðuð hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2005.
Báturinn var keyptur til Grímseyjar árið 2006 og fékk nafnið Gyða Jónsdóttir EA 20 sem hann bar í um tíu ár.
Árið 2016 fékk hann nafnið Hafrafell SU 85 með heimahöfn á Fáskrúðsfirði.
Ári síðar fékk báturinn nafnið Björgvin SU 41 og ber það nafn enn þann dag í dag. Heimahöfnin er Mjóifjörður.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution