
Jón Steinar tók þessar myndir af Fjølni GK 757 í dag þar sem hann var að draga línuna í rjómablíðu út af Stafnesi.
Það er óhætt að segja að kallarnir hafi verið að mokfiska því eftir búið var að draga línu af ellefu rekkum voru komin rúm tuttugu tonn í bátinn og uppistaðan boltaþorskur. Þeir höfðu lagt tólf rekka af línu og einn var skilinn eftir í sjó eftir þegar farið var til hafnar í Sandgerði að landa.






Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution