Siggi Valli ÞH 44

2376. Siggi Valli ÞH 44 ex Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Siggi Valli ÞH 44 bíður hér eftir því að komast undir löndunarkranann á Húsavík þann 10. september árið 2004.

Báturinn hét upphaflega Mávur SI 76 og var smíðaður árið 1999 hjá Trefjum í Hafnarfirði.

Mávur SI 76 var keyptur til Húsavíkur árið 2004 og fékk þá nafnið Siggi Valli ÞH 44 og gerður út af Tjörnesi ehf. hér í bæ.

Báturinn, sem var tæpar 6 brl. að stærð, var seldur til Færeyja árið 2008.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd