
Hér gefur að líta Höfrung III ÁR 250 við bryggju á Siglufirði sumarið 1988 eða níu.
Þarna var verið að hefjast handa við að yfirbyggja bátinn sem upphaflega var Höfrungur III AK 250.
Höfrungur III var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi.
Báturinn var seldur til Þorlákshafnar í nóvember árið 1975. Hann var endurmældur ári síðar og mældist þá 221 brl. að stærð.
Báturinn var yfirbyggður á Siglufirði rétt fyrir 1990. Hann fékk síðar nafnið Hafnarröst ÁR 250 og var að lokum seldur úr landi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution