Komið úr hvalaskoðun á Eyjafirði

Whales ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Whales frá Hauganesi kemur hér að landi á Akureyri í dag eftir hvalaskoðunarferð á Eyjafirði innanverðum.

Báturinn, sem er 53 brl. að stærð, hét upphaflega Gunnar Hámundarson GK 357 og var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur.

Gunnar Hámundarson GK 500 var seldur norður á Hauganes haustið 2016 og sumarið eftir hóf hann siglingar með farþega á hvalaslóðir Eyjafjarðar. Útgerð Whales Hauganes ehf. sem einnig gerir út Níels Jónsson EA 106.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd