Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Hulda Björnsdóttir GK 11 leggur hér upp í veiðiferð frá Grindavík sl. þriðjudag eftir að hafa landað um 112 tonn tonna afla sínum fyrr um daginn.

Til fróðleiks má geta þess að togarinn landaði rétt rúmum 5000 tonnum í Grindavíkurhöfn á síðastliðnu ári.

Hulda Björnsdóttir GK 11 er smíðuð 2024 hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni. Lengd hennar er 57,91 metrar og breiddin 13,59 metrar.

Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir Huldu Björnsdóttur GK 11 út.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd