Viking 1 við Slippkantinn

IMO 9212357. Viking 1 ex Hákon EA 148. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Nóta- og togskipið Viking 1 liggur hér við Slippkantinn á Akureyri í dag en eins og glöggir menn sjá er þetta fyrrum Hákon EA 148.

Skipið hefur undanfarna mánuði verið í klössun á Akureyri en það var selt til Oman fyrr á árinu. heimahöfn þess er Port Sultan Qaboos (PSQ).

Viking 1 var smíðaður í Asmarskipasmíðastöðina í Talcahuano í Chile árið 2001 og er 65,95 metrar að lengd, breidd skipsins er 14,40 metrar og það mælist 3003 BT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd