
Hér liggur loðnuskipið Örn KE 13 við bryggju í Krosssanesi um árið að lokinni löndun.
Örn var upphaflega RE 1 og gerður út af Hinu almenna fiskveiðifélagi hf. í Reykjavík sem lét smíða hann í Noregi og kom hann til landsins í ágústmánuði árið 1966.
Örn RE 1 var seldur norður á Hofsós árið 1971 og var SK 50. Árið 1973 kaupa Örn og Þorsteinn Erlingssynir Örninn sem varð þá KE 13 og heimahöfnin Keflavík.
Skipið var lengt og yfirbyggt árið 1976.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution