Fossborg ÁR 31

1068. Fossborg ÁR 31 ex Arnþór EA 16. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Fossborg ÁR 31 hét upphaflega Valur NK 108 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1968.

Árið 1974 fékk báturinn nafnið Arnþór EA 16 og var með heimahöfn á Árskógssandi.

Það var svo tíu árum síðar, eða árið 1984, sem báturinn fékk það nafn sem hann ber á myndinni. Heimahöfnin var á Eyrarbakka og hét báturinn Fossborg ÁR 31 í fjögur ár.

Síðan hét hann Helguvík ÁR, Sæmundur GK og Sæmundur SF og Sæljós GK og árið 2010 var hann kominn á Djúpavog þar sem hann fékk nafnið Sænes SU 44.

Það var svo árið 2020 sem Gullrún ehf. á Breiðdalsvík kaupir bátinn og hann fær nafnið Goðaborg SU 16.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd