
Hrappur GK 89 er hér að koma úr línuróðri um árið en hann var gerður út frá Grindavík.
Hrappur var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1959 og hét upphaflega Sigurvon GK 206 frá Grindavík.
Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, fékk nafnið Magnús RE 96 árið 1976. Fjórum árum síðar fékk hann nafnið Villi RE 96.
1984 hét báturinn Sólveig RE 96 en síðar sama ár fékk hann það nafn sem hann ber á myndinni, Hrappur GK 89.
Hrappur Gk 89 var tekinn af skipaskrá 12. desember 1988.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution