Fossborg ÁR 31

571. Fossborg ÁR 31 ex Fossborg RE 31. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Fossborg ÁR 31 var smíðuð upp úr nótabát á Sauðaárkróki árið 1962 og hét upphaflega Hjörtur Laxdal SK 106 með heimahöfn á Króknum.

Frá Sauðaárkróki fór báturinn árið 1969 og bar hann eftirfarandi nöfn upp frá því: Margrét Helgadóttir AK 108, Margrét Helgadóttir SH 45, Margrét Helgadóttir ÍS 222, Margrét Helgadóttir ÍS 151, Kristín NK 14, Fossborg RE 31 og að lokum Fossborg ÁR 31 en það nafn bar báturinn þegar hann var tekinn af skipaskrá 31. ágúst 1984. (Heimild: aba.is)

Ef síðuritari man rétt var báturinn, sem var 16,5 brl. að stærð, gerður út frá Húsavík um tíma þegar hann bar nafnið Kristín NK 14.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd