
Hér gefur að líta Eyvind KE 37 þar sem hann liggur utan á Sandgerðingi GK 268 í Sandgerðishöfn.
Eyvindur hét upphaflega Einar Hálfdáns ÍS 8 og var smíðaður á Seyðisfirði árið 1947.
Báturinn, sem var 42 brl. að stærð, var með heimahöfn í Bolungarvík en árið 1953 fékk hann nafnið Völusteinn og var áfram ÍS 8.
Báturinn átti síðan eftir að bera nöfnin Völusteinn ST 50, Uggi VE 52, Ari Einarsson GK 400, Friðgeir Trausti GK 400, Vikar Árnason KE 121, Hvalnes GK 376 og árið 1989 fékk hann Eyvindarnafnið.
Árið 1991 hét hann Eyvindur KE 371 og síðar sama ár fékk báturinn nafnið Guðmundur Ingvar KE 40 og var það hans síðasta nafn.
Guðmundur Ingvar KE 40 var afskráður af skipaskrá 10. apríl 1992.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.