
Hér gefur að líta Báru SH 264 upp á landi á Rifi sumarið 1986 ef minni mitt bregst mér ekki.
Bára, sem var 7 brl. að stærð, var smíðuð á Ólafsfirði og lauk smíði hennar árið 1974.
Upphaflega hét báturinn Sindri ÓF 20 en árið 1983 var báturinn seldur til Vopnafjarðar þar sem hann fékk nafnið Bára NS 64.
Árið 1985 fór báturinn til Ólafsvíkur og fékk þar nafnið Bára SH 264 og það nafn bar hann þegar hann var tekinn af skipaskrá haustið 1992.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.