
Haukafell SF 111 var smíðað hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1998 og er af gerðinni Cleopatra 38.
Báturinn, sem er 11,98 brl. að stærð, var seldur til Grindavíkur árið 2001 þar sem hann fékk nafnið Stakkavík GK 45. Síðar sama ár fékk báturinn nafnið Huld GK 45.
Frá árinu 2002 hefur báturinn borið nöfnin Særif SH 25, Nonni í Vík SH 251, Nonni í Vík SH 14, Klukkutindur SU4, Bára ÍS 200, Bára SI200, aftur Bára ÍS 200, Flugalda SK 104, Flugalda SI 5 og Flugalda ÓF 15 en þá skráningu hefur báturinn borið frá árinu 2013.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution