Guðrún Ósk GK 81

6036. Guðrún Ósk GK 81 ex Svalur SH 274. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Guðrún Ósk GK 81, sem kemur hér til hafnar í Sandgerðu um árið, heitir í dag Apríl BA 25 og er með heimahöfn á Patreksfirði.

Báturinn var smíðaður hjá Skel hf. árið 1979 og hét upphaflega Vöggur NK 3.

Árið 1984 fékk hann nafnið Felix ÞH 261 með heimahöfn á Húsavík og ári síðar er báturinn kominn vestur á Hellisand þar sem hann fékk nafnið Svalur SH 274. Árið 1997 var Svalur skráður með heimahöfn í Ólafsvík.

Árið 1999 fékk báturinn nafnið Guðrún Ósk GK 81 með heimahöfn í Sandgerði. 

Tíu árum síðar fékk báturinn nafnið Sigrún GK 81 með heimahöfn í Njarðvík en frá árinu 2010 hefur báturinn heitið Apríl BA 25.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd