Felix ÞH 261

6036. Felix ÞH 261 ex Vöggur NK 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Felix ÞH 261 hét upphaflega Vöggur NK 3 frá Neskaupstað og var smíðaður hjá Skel hf. árið 1979.

Árið 1984 fékk Vöggur nafnið Felix ÞH 261 og ef ég man rétt var eigandi Aðalsteinn Guðmundsson á Kvíslárhóli á Tjörnesi.

Ári síðar er báturinn kominn vestur á Hellisand þar sem hann fékk nafnið Svalur SH 274. Árið 1997 var Svalur skráður með heimahöfn í Ólafsvík.

Árið 1999 fékk báturinn nafnið Guðrún Ósk GK 81 með heimahöfn í Sandgerði. 

Tíu árum síðar fékk báturinn nafnið Sigrún GK 81 með heimahöfn í Njarðvík. 

Frá árinu 2010 hefur báturinn heitið Apríl BA 25 með heimahöfn á Patreksfirði.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd