Eyjarnar lönduðu í Grindavík í gær

2964. Bergey VE 44 – 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Systurnar Vestmannaey og Bergey komu til löndunar í Grindavík í bítið í gærmorgun. Þær voru kallaðar inn þar sem vantaði hráefni í vinnsluna hjá Vísi.

Vestmannaey var með 101 kar sem gerir um 35 tonn uppistaðan þorskur og ýsa.

Bergey var með 132 kör sem gerir um 46 tonn uppistaðan ufsi, þorskur og ýsa.

Túrarnir sem voru stuttir hjá þeim hófust síðastliðið mánudagskvöld þegar áhafnirnar komu til landsins að aflokinni vel heppnaðri árshátíðarferð til Sopot í Póllandi.

Það var haldið út strax að lokinni löndun.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd