Sæstjarnan RE 850

2195. Sæstjarnan RE 850. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér verið að landa úr Sæstjörnunni RE 850 í Sandgerði um árið en báturinn var smíðaður á Stokkseyri árið 1992.

Árið 2000 fékk Sæstjarnan, sem er tæplega 7 brl. að stærð, nafnið Ingólfur GK 148 og ári síðar var hann orðinn Helgi GK 404. Heimahöfnin var Sandgerði.

Tíu árum síðar fékk báturinn nafnið Valdimar SH 250 með heimahöfn á Grundarfirði. 

Árið 2022 fékk báturinn nafnið Valdi SH 251 en árið 2023 var hann seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Ásrún SH 37.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd