Þorkell Björn NK 110

1189. Þorkell Björn NK 110 ex Þorkell Björn NS 323. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Þorkell Björn NK 110 er hér við dragnótaveiðar um árið og fjær er Kristján EA 178 sem síðar varð Ásgeir ÞH 198.

Sem sagt báðir þessir bátar voru gerðir út frá Húsavík á sínum tíma því Þorkell Björn var ÞH 66 og gerður út frá Húsavík árin 1976-1981.

Þorkell Björn, sem var 17 brl. að stærð, hét upphaflega Ólafur Björn RE 45 og var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1971.

Árið 1973 fékk báturinn nafnið Þorkell Björn SU 35 með heimahöfn á Eskifirði. 

Eins og fyrr segir var Þorkell Björn gerður út frá Húsavík árin 1976 – 1981 en þá var hann seldur til Bakkafjarðar og varð NS 123.

Árið 1988 var Þorkell Björn NS 323 en ári síðar var hann seldur til Norðfjarðar og varð NK 110

Frá árinu 2003 hét hann Esther GK 47 með heimahöfn í Sandgerði og ári síðar fékk hann anfnið Auðbjörg SK 6 með heimahöfn á Hofsósi.

Frá árinu 2005 hét hann Auðbjörg HU 2 með heimahöfn á Skagaströnd og það nafn bar báturinn þegar hann var tekinn úr rekstri  og felldur af skipaskrá 5. október 2010. Heimild: aba.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd