Bára SH 27

2274. Bára SH 27 ex Sandvík EA 200. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Bára SH 27 hét upphaflega Sandvík SK 188 og var smíðuð á Ísafirði 1996 hjá Skipasmíðastöðinni hf. fyrir útgerðarfyrirtækið Tind ehf. á Sauðárkróki.

Árið 2001 var báturinn seldur til Stykkishólms þar sem hann verður Sandvík SH 53. Hann var lengdur árið 2005 og árið 2008 er hann orðinn SH 4.

Sandvík SH 4 var seld norður á Hauganes vorið 2013 og hét báturinn áfram Sandvík en var þá EA 200.

Haustið 2016 keyptur til Hellisandi og fékk nafnið Bára SH 27 sem hann ber enn þann dag í dag. Bára er 44 BT að stærð og frá árinu 2019 er heimahöfnin Rif.

Það er Royal Iceland hf. sem á og gerir bátinn út í dag.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd