
Rifsnes SH 44 landaði um 90 tonnum á Skagaströnd í gær og tók Jón Steinar þessar myndir af skipinu við komu þess þangað.
Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét áður Polarbris og var smíðað árið 1999 í Noregi. Nánar tiltekið í Larsnes Mek. Verkstad A/S.
Rifsnesið er 43 metrar að lengd, breiddin er níu metrar og það mælist 776 BT að stærð.




Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution