Esjar SH 75

2330. Esjar SH 75. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Dragnótabáturinn Esjar SH 75 kemur hér að landi á Rifi en myndina tók Vigfús Markússon.

Það er Hraðfrystihús Hellissands sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti hann árið 2020.

Esjar SH 75 var smíðaður hjá Ósey í Hafnarfirði árið 1999 og hefur alla tíð heitið sama nafni. Báturinn var lengdur árið 2002 og mælist í dag 55 brúttótonn að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd