
Heimaey VE 1 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gær að aflokinni makrílvertíð en skip Ísfélagsins hafa landað makrílafla sínum á Þórshöfn.
Heimaey VE 1 bættist í flota Ísfélagsins í vor og leysti samnefnt skip af hólmi.
Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, var smíðað hjá Karstensen skipasmíðastöðinni í Skagen árið 2017.
Ísfélagið hf. keypti skipið af Lunar Fishing Company Limited í Skotlandi en heimahöfn þess var Peterhead.
Heimaey VE 1 er 78 metrar að lengd og breidd hennar er 15,5 metrar. Skipið mælist 2,935 BT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.