Óskar ÞH 234

2163. Óskar ÞH 234 ex Arnar SH 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Óskar ÞH 234 kom nýverið úr miklum endurbótum og hefur nú hafið strandveiðar frá Húsavík.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun en þá var tekinn myndarúntur að lokinni löndun. Það er Hnoðri ehf. sem gerir Óskar ÞH 234 út.

Báturinn hét upphaflega Sunna AK 6 og var smíðaður í Hveragerði árið 1992.

Árið 1997 fékk báturinn nafnið Garri SI 128 með heimahöfn á Siglufirði. Þar var hann í þrjúr en bar síðan nöfnin Lilja SH 153, Vikar KE 121, Staðarbeerg GK 40 og Arnar SH 32.

Árið 2015 fékk báturinn nafnið Óskar ÞH 234 og er með heimahöfn á Húsavík.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd