Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfel EA 740. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun þegar Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 kom til löndunar í Grindavík.

Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var Þorbjörn hf. sem keypti og fékk Snæfellið nafnið Hrafn Sveinbjarnarson GK 255.

Togarinn var lengdur um 15,4 metra í skipasmíðastöð í Stettin í Póllandi sumarið 2014. Hann er nú 62,96 metrar að lengd. Aðalvél hans er 2500 hestafla Deutz.

Það er Þorbjörn ehf. sem gerir togarann út.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd