Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Jón Steinar tók þessar myndir af Huldu Björnsdóttur GK 11 í morgun þegar hún kom til löndunar í Grindavík.

Aflinn var um 100 tonn. Uppistaðan þorskur, ýsa og karfi.

Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni norðanverðum.

Hulda Björnsdóttir GK 11 er 1,864 BT að stærð. lengd hennar er 57,91 metrar og breiddin 13,59 metrar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd