
Skemmtiferðaskipið World Traveller var á Húsavík og var þessi mynd tekin eftir að skipið lagði úr höfn um miðjan dag.
Skipið var smíðað árið 2022 og siglir undir Portúgölskum fána með heimahöfn á Madeira.
Lengd þess er 126 metrar, breiddin 19 metrar og það mælist 9,930 GT að stærð.
Eins og áður segir var World Traveller smíðað árið 2022 og fór smíðin fram í West Sea Shipyard í Viana do Castelo í Portúgal.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution