Hugrún Fjóla DA 4

7337. Hugrún Fjóla DA 4 ex Gunna Valda ÍS 75. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025.

Hugrún Fjóla DA 4 hét upphaflega Unnur ÁR 7 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991.

Árið 1997 varð Unnur SF 202 með heimahöfn á Hornafirði og síðar sama ár var heimahöfnin orðin Grindavík og Unnur GK 41.

Það var svo aldamótarárið 2000 sem báturinn fékk nafnið Kósý EA 27 og heimahöfnin Dalvík í fyrstu en Grímsey árin 2001-2021. 

Árin 2018-2021 bar báturinn nafnið Karen EA 27 en 2021 varð Karen með heimahöfn á Suðureyri og var ÍS 75. Sama ár varð báturinn EA 25 en árin 2022-2023 hét hann Gunna Valda ÍS 75 með heimahöfn á Suðureyri.

Báturinn hefur borið nafnið Hugrún Fjóla DA 4 frá árinu 2023 með heimahöfn í Búðardal.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd