
Farþegaskipið Rotterdam sigldi inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík.
Rotterdam er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri en það er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð.
Skipið var smíðað á Ítalíu og tekið í notkun árið 2021. Það siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Rotterdam.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution