Malik Arctica kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9618135. Malik Arctica á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Flutningaskipið Malik Actica kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði

Skipið er í eigu Royal Arctic Line A/S á Grænlandi og var smíðað árið 2017. Það siglir undir dönskum fána með heimahöfn í Álaborg.

Malik Arctica er 114,4 metrar að lengd, breidd skipsins er 22,7 metrar og það mælist 10,537 GT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd