Korri ÞH 444

6844. Korri ÞH 444 ex Árný I ÞH 64. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. 2000.

Korri ÞH 444 á siglingu á Skjálfanda vorið 2000 en þarna var nýbúið að setja á flot.

Korri, sem var í eigu Hreiðars Olgeirssonar, hét upphaflega Bylgja SK 54 og var með heimahöfn á Hofsósi. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987.

Síðar bar hann nöfnin Bylgja ÞHH 278, Árný I ÞH 64, Korri ÞH 444, Skjálfandi ÞH 6, Skjálfandi EA 6 og heitir í dag Sæborg EA 125.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd