Kósý EA 37

7337. Kósý EA 27 ex Unnur GK 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012.

Hér kemur mynd frá árinu 2012 sem sýnir Sómabátinn Kósý EA 27 úr Grímsey koma til hafnar á Dalvík.

Báturinn hét upphaflega Unnur ÁR 7 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991.

Árið 1997 varð Unnur SF 202 með heimahöfn á Hornafirði og síðar sama ár var heimahöfnin orðin Grindavík og Unnur GK 41.

Það var svo aldamótarárið 2000 sem báturinn fékk nafnið Kósý EA 27 og heimahöfnin Dalvík í fyrstu en Grímsey árin 2001-2021.

Árin 2018-2021 bar báturinn nafnið Karen EA 27 en 2021 varð Karen með heimahöfn á Suðureyri og var ÍS 75. Sama ár varð báturinn EA 25 en árin 2022-2023 hét hann Gunna Valda ÍS 75 með heimahöfn á Suðureyri.

Bátruinn hefur borið nafnið Hugrún Fjóla DA 4 frá árinu 2023 með heimahöfn í Búðardal.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd