Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9813084. Fridtjof Nansen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Fridtjof Nansen.

Fridtjof Nansen er svokallað leiðangursskip sem HX Expeditions (áður Hurtigruten) gerir út og ber nafn norska land­könnuðar og vís­inda­mannsins, Fridtjof Nan­sen.

Skipið er tví­orku (hybrid) skip og var afhent frá Kleven Verft AS í Noregi árið 2020.

Fridtjof Nansen er 140 metrar að lengd, breidd skipsins er 24 metrar og það mælist 21,765 GT að stærð.

Heimahöfn skipsins, sem tekur 530 farþega, er Longyerbyen á Svalbarða.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd