Jökull útbúinn á grálúðunet

2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í morgun.

Þar var verið að útbúa Jökul ÞH 299 til grálúðuveiða í net en hann kom á dögunum norður eftir vetrarvertíð. Byrjaði í Breiðafirði en færði sig fljótt suður fyrir land.

Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. 

Hann er útbúinn til línu- og netaveiða og gerður út af GPG Seafood á Húsavík. Heimahöfn Jökuls er á Raufarhöfn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd