
Dröfn RE 42 hét upphaflega Gullborg KÓ 10 og var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1962.
Báturinn, sem var tæplega 12 brl. að stærð, átti heimahöfn í Kópavogi til ársins 1968 er hann var seldur vestur á Flateyri. Þar fékk hann nafnið Gullveig ÍS 81.
Árin 1974-1976 bar hann nafnið Katrín ÍS 54 með heimahöfn á Ísafirði.
Frá árinu 1976 – 1985 hét hann Katrín BA 71 með heimahöfn á Patreksfirði.
Árið 1985 fékk hann nafnið hann Kristján BA 71 og heimahöfnin áfram Patreksfjörður.
Árið 1986 var báturinn seldur til Akraness þar sem hann fékk nafnið Enok AK 8 sem hann bar til ársins 1991 er hann varð Enok II AK 189.
Síðar það sama ár fékk báturinn nafnið Dröfn RE 42 sem var hans síðasta nafn.
Dröfn var afskráð af skipaskrá sumarið 1999. Heimild: aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.