Júlíus Garðar ÁR 111

1929. Júlíus Garðar ÁR 111 ex Brík BA 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002.

Júlíus Garðar ÁR 111 hét upphaflega Kópur HF 202 og var smíðaður í Noregi árið 1990.

Sama ár var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jói á Nesi SH 159.

Hann var lengdur árið 1991 og er tæpar 12 brl. að stærð eftir það.

Frá Ólafsvík fór báturinn til Bíldudals þar sem hann fékk nafnið Brík BA 2.

Það var svo árið 2001 sem báturinn fékk nafnið Júlíus Garðar ÁR 111 sem hann hét til ársins 2004.

Það ár var báturinn seldur til Stöðvarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Gjafar SU 90.

Síðar varð Gjafar GK 105, NS 80 og í dag er Gjafar ÍS 72.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd