
Loðnuskipið Víkurberg Gk 1 kemur hér að bryggju í Njarðvík um árið en það voru Benóný Þórhalsson og Reynir Jóhannsson sem gerðu skipið út.
Þeir keyptu skipið frá Siglufirði árið 1980 en þar bar það nafnið Stapavík SI 4 og hafði verið í eigu Þormóðs Ramma frá því um sumarið 1976.
Upphaflega hét skipið Reykjaborg RE 25 og var smíðað í Noregi árið 1964 fyrir samnefnt fyrirtæki í Reykjavík.
Árin 1974-1976 var Reykjaborg í eigu Hvalfells hf. í Reykjavík og Halldórs Lárussonar í Keflavík.
Heimild: Íslensk skip
Skipið gekk í gegnum miklar breytingar á sinni lífsleið, m.a lengt í tvígang, yfirbyggt, skipt um brú og nýr skutur.
Víkurberg GK 1 var selt Tanga hf. á Vopnafirði og Jökli hf. á Raufarhöfn vorið 1998 og tæpu árið síðar kaupir Vísir hf. í Grindavík skipið. Það fékk í framhaldinu nafnið Sunnutindur SU 59.
Sunnutindur var seldur úr landi til niðurrifs árið 2004.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution