
Hér kemur myndasyrpa frá öðrum degi páska sem Jón Steinar tók af Grindjána GK 169 við handfæraveiðar úti fyrir Hópsnesi.
Grindjáni hét upphaflega Toggi ÁR 75 og var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1991.
Frá árinu 1994 hét báturinn Tindur SH-179, Ólafsvík.
Frá árinu 1998 hét hann Tindur SF 53 og 2001 Tindur GK 303. Árið 2006 fékk hann nafnið Grindjáni og hefur borið það síðan.
Það er Fyrir þjóðina ehf. sem á bátinn og gerir út en að því fyrirtæki standa bræðurnir Einar og Jón Gauti Dagbjartssynir.
Þeir skiptast á að róa og á þessum myndum er það Jón Gauti sem er um borð en aflinn var 1700-1800 kíló eftir sex klukkustunda róður.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution