
Fróði ÁR 3 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann var smíðaður árið 1963 í Stálsmiðjunni hf. í Reykjavík.
Báturinn hét upphaflega Arnarnes GK 52 og var smíðaður árið 1963 í Stálsmiðjunni hf.í Reykjavík.
Fróði var fyrir lengingu 103 brl. að stærð og smíðaður fyrir Íshús Hafnarfjarðar hf. í Hafnarfirði en hann var fyrsta stálfiskiskipið sem smíðað var á Íslandi.
Arnarnes GK 52 var selt Hraðfrystihúsi Stokkseyrar ofl. í desembermánuði 1973. Báturinn fékk nafnið Fróði ÁR 33 sem hann hét allt til enda.
Fróði var tekinn af skipaskrá sumarið 2008, þá í eigu Ramma hf., og seldur í brotajárn.
Báturinn gekk í gegnum breytingar á sínum tíma sem m.a fólust í nýrri brú, síðar var hann lengdur og yfirbyggður.
Eftir þær breytingar mældist Fróði 136 brl. að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution