
Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til hafnar í Hafnarfirði nú síðdegis og lá ég fyrir honum þar.
Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár.
Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Cemre-skipasmíðastöðinni.
Kaldbakur EA kom fyrstur, síðan Björgúlfur EA og næst kemur Drangey SK og loks Björg EA.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution