Skipaskagi AK 102

1612. Skipaskagi AK 102 ex Glen Carron. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Skipaskagi AK 102 var keyptur árið 1982 frá Englandi þar sem hann bar nafnið Glen Carron.

Það var Heimaskagi hf. á Akranesi sem keypti togarann til landsins en hann var smíðaður hjá Clelands Shipbuilding Co Ltd í Wallsend í Englandi árið 1974.

Skipaskagi, sem var 297 brl. að stærð var einn þriggja togara af þessari gerð sem keyptir voru til landsins um svipa leyti, hinir voru Baldur EA 108 og Haförn GK 90.  

Í desember 1991 var Skipaskagi seldur Valdimar hf. í Vogum og fékk hann nafnið Þuríður Halldórsdóttir GK 94.

Síðar bar togarinn nöfnin Sturla GK 12, Sólborg I ÍS 260, Hallgrímur BA 77 og loks Hallgrímur SI 77.

Hallgrímur SI 77 fórst vest­ur af Nor­egi í janúarmánuði árið 2012 en skipið hafði verið selt til Noregs í brota­járn og var á leið þangað.

Fjögurra manna áhöfn var á Hallgrími og bjargaðist einn þeirra úr sjónum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd