Smári SH 221

778. Smári SH 221 ex Smári RE 59. Ljósmynd Þorgrímur Aðalgeirsson.

Á þessari mynd Þorgríms Aðalgeirssonar gefur að líta Smára SH 221 í slipp en hann var upphaflega ÞH 59.

Smári var smíðaður í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. árið 1949 og var 63 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Vísi hf. Húsavík sem gerði bátinn út til ársins 1965 en þá var hann seldur til Reykjavíkur.

Smári, sem hafði fengið einkennisstafina ÞH um 1960, hélt nafni sínu en varð RE 59.

Árið 1972 var báturinn kominn vestur í Stykkishólm þar sem hann varð Smári SH 221 og þaðan var hann gerður út það sem eftir var.

Báturinn var í eigu kvikmyndafyrirtækis síðustu árin og bar þá einkennisstafina GK.

Hann var tekinn af skipaskrá á árslok 1998.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd