Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun.

Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík.

Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd