Sigurvon ÁR 121

2161. Sigurvon ÁR 121 ex Sigurvon RE 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Handfærabáturinn Sigurvon ÁR 121 kemur hér til Grindavíkur í gær en þar var fyrsta heimahöfn bátsins.

Báturinn hét upphaflega Hallvarður á Horni GK 111 og var smíðaður 1992 hjá Mótun í Hafnarfirði fyrir Hafstein Sæmundsson útgerðarmann í Grindavík.

Hefur í gegnum tíðina borið þessi nöfn: Hallvarður á Horni GK 111, ST 17 og ST 26. Hallvarður ÍS 430, Sigurvon ÍS 26, Sigurvon ÍS 260, Sigurvon RE 11 og frá árinu 2021 Sigurvon ÁR 121.

Útgerð og eigandi Selvogsgrunn ehf. og heimahöfnin Þorlákshöfn.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd