Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í dag þega Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík eftir að hafa landað þar fullfermi.

Aflinn var um 440-450 kör sem gerir um 140-145 tonn og fékkst í 5 lögnum. Uppistaða aflans var langa eða 190 kör, svo um 100 kör þorskur og minna af öðru.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd