Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn.

Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vest­værf­tet i Hvi­desand í Dan­mörku árið 2019 og er út­bú­inn til drag­nóta- og tog­veiða.

Hildur SH 777 er 33,25 metrar að lengd, 9,4 metrar að breidd.  Aðalvél bátsins er 750 KW Mitsu­bis­hi og þá eru vær John De­ere ljósa­vél­ar í honum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd