Oddur á Nesi SI 76

2799. Oddur á Nesi SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014.

Oddur á Nesi SI 76 var smíðaður á Siglufirði 2010 fyrir Útgerðarfélagið Nesið ehf. þar í bæ.

Í maímánuði 2015 var hann orðinn ÓF 176, í eigu sömu útgerðar, og í apríl 2016 fær báturinn nafnið Örninn ÓF 176.

Marver ehf. í Grindavík keypti bátinn árið 2016 og fékk hann nafnið Daðey GK 777.

Í nóvember 2017 er Vísir hf. orðinn eigandi bátsins.

Haustið 2024 fær báturinn nafnið Hemmi á Stað GK 80 og er í eigu Stakkavíkur.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd